Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Eignaupptaka
Svo segir í drögum að landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins um landbúnaðarmál.
Ég er því miður ekki menntaður í lögum og kannski er það þess vegna sem ég fæ þessa stefnu Sjálfstæðisflokksins ekki alveg til að ná samhljómi við tilraunir ríkisvaldsins til eignaupptöku á jörðum.
Bændur víða um land hafa þurft að verja eignarrétt sinn með kjafti og klóm enda hefur ríkisvaldið alltaf lagt fram ítrustu kröfur. Því miður hafa þeir ekki alltaf náð að verja sitt. Þegar lög um þjóðlendur voru sett er öruggt að enginn þingmaður ætlaði ríkisvaldinu að ganga fram að jafnmikilli hörku og raun hefur orðið. Sunnlenskir bændur hafa staðið í ströngu og nú hefur ríkisvaldið flutt sig norður yfir heiðar. Sveitungar mínir í Skagafirði eru nú að undirbúa varnarstríð.
Framganga ríkisvaldsins í þessu máli, allt frá upphafi, hefur verið með ólíkindum og sanngirni verið látin lönd og leið. Enn ótrúlegra er að hernaðurinn gegn eignarréttinum skuli vera undir herstjórn Sjálfstæðisflokksins, Geirs Haarde og nú Árna Mathíesen fjármálaráðherra.
Kannski að bændur sem eiga sæti á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem hefst í dag, ættu að sækja málið á fundinum. Það ætti að vera tiltölulega einfalt fyrir þá að fá aðra óbreytta sjálfstæðismenn til liðs við sig, - eignarrétturinn er enn í hávegum hafður meðal sjálfstæðismanna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:12 | Facebook
Athugasemdir
Þessi drög að yfirlýsing landsfundar Sjálfstæðisflokksins hljóma einkennilega fyrir hverjum þeim sem kynnst hafa framgöngu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, sem og Framsóknar þessi síðustu misseri. Ég á harla erfitt með að trúa því að þessi tveir flokkar, sem kenndir hafa verið við vörslu eignarréttarins annars vegar og það að vera málsvari bænda hins vegar, séu loksins núna að átta sig á því, rétt fyrir kosningar, hvað verk þeir hafa verið að vinna sínusti misseri.
Ef áratuga og árhundraða gamlar þinglýsingar eru einskis virði þegar að kemur að eignum smábænda um land allt, þá er kominn tími fyrir þá sem eiga skip og kvóta að skoða sinn gang.
Fjármálaráðherra trúir því væntanlega að þessi aðför að bændum kosti færri landsbyggðar aðkvæði fyrir flokksfélaga hans en sem nemu ávinningi hans í Hafnar firði.
Það er hollt hverjum þeim sem lifir af atkvæðaveiðum að þekkja aukategundirnar. Á jörðinn sem ég ólst upp á búa núna tvennt, það eru hinsvegar 30 lögerfingjar sem búa í þéttbýli sem ættir sínar að rekja á þennan bæ.
Björn Maríus Jónasson
Björn Jónasson (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 09:58
Sæll Óli. Góð ábending hjá þér. Vonandi veit þessi ályktun á breytt viðhorf. Annars er ég hættur að botna í hvert gamli sjálfstæðisflokkurinn – þessi útvörður eignarréttar í gegn um tíðina - er að fara um þessar mundir.
Fyrst þessi þjóðlendumál þar sem markmiðið er að gera sem víðtækastar kröfur í eignalönd og að véfengja eins og hægt er allar heimildir einstaklinga um eignarrétt sinn. Í öðru lagi að flokkurinn hafi verið tilbúinn til að setja í stjórnarskrá að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera eign ríkisins!!! - sem betur fer varð það ekki að þessu sinni, en ýmsir fulltrúar flokksins virðast telja þetta sjálfsagt mál!!!
Ég bloggaði um þetta fyrir stuttu:
http://www.steinisv.blog.is/blog/steinisv/entry/150321/
Hef einnig séð fleiri skrifa um þessi mál:
http://issi.blog.is/blog/issi/entry/173734/
http://lydur.blog.is/blog/lydur/entry/173439/
Þorsteinn Sverrisson, 12.4.2007 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.