Þriðjudagur, 1. maí 2007
Jón Ásgeir fyrirlesari á ráðstefnu Financial Times
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, verður einn fyrirlesara á ráðstefnu hins virta dagblaðs Financial Times.
Ráðstefnan verður haldin í Feneyjum 3.-5. júní næstkomandi og er fókusinn á munaðarvörur og -þjónustu - lúxus. Yfirskriftin er Old Luxury in New Markets; New Luxury in the Old World.
Það þykir mikil viðurkenning fyrir einstaklinga að Financial Times skuli leita til þeirra um að taka þátt í ráðstefnum sem blaðið heldur. Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er hægt á finna hér.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Financial Time! Ja, nú er það ljótt! Hataðasti "götustrákur" norðan Alpafjalla með fyrirlestur á fínni ráðstefnu. Skyldi Davíð vita af þessu? Eða þessir innmúruðu og innvígðu? Og þeim er ekki boðið. Vita þeir ekkert hvað þeir eru að gera þessir menn í Amríku? Sko, ég held bara að Davíð verði að taka upp símann!
Auðun Gíslason, 2.5.2007 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.